Tvær íslenskar kvikmyndir þær stærstu á árinu
Í fyrsta skipti síðan mælingar hófust eru tvær íslenskar kvikmyndir sem tróna á toppnum sem stærstu kvikmyndir á árinu. Þetta eru kvikmyndirnar Ég man þig sem þénaði tæpar 76,6 milljónir kr. (47.368 gestir) og Undir trénu sem þénaði 67,7 milljónir kr. (42.427 gestir). Nýjasta Star Wars myndin, The Last Jedi, var svo í þriðja sæti með 67,5 milljónir kr. í tekjur en sú kvikmynd er jafnframt sú eina þar sem aðsókn var yfir 50 þúsund manns á árinu en heildaraðsókn ársins að henni var 50.645 enda þótt kvikmyndin hafi einungis verið í sýningu frá 12. desember.
Heildartekjur allra kvikmynda í íslenskum kvikmyndahúsum á árinu námu 1.688.453.577 kr. sem er á pari við tekjur kvikmyndahúsa árið 2016 sem námu þá 1.689.720.455 kr. Aðsókn dróst hins vegar saman um 3,4%. Var 1.371.820 árið 2017 en var 1.420.435 árið 2016. Hver Íslendingur fór því rúmlega fjórum sinnum í kvikmyndahús á árinu.
Á síðustu fjórum árum hafa íslenskar kvikmyndir trónað þrisvar á toppnum yfir tekjuhæstu kvikmyndir ársins, sem hlýtur að teljast einkar jákvætt fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað. Að þessu sinni voru þrjár íslenskar myndir á lista yfir tuttugu vinsælustu kvikmyndir ársins en kvikmyndin Hjartasteinn situr í 11. sæti með tæpar 34,5 milljónir kr. í tekjur en yfir 22.000 manns sáu kvikmyndina í bíóhúsum. Hlutfall íslenskra kvikmynda af heildartekjum var 11,22% árið 2017 en var 6,6% á árinu 2016 svo þeirra íslensku var umtalsvert fyrirferðarmeira í kvikmyndahúsum en árið á undan. Samtals voru 17 íslenskar kvikmyndir/heimildarmyndir sýndar í kvikmyndahúsum á árinu en voru 15 árið á undan. Vinsælasta íslenska heimildarmyndin á árinu var kvikmyndin um Reyni sterka sem rúmlega 2.200 manns sáu í kvikmyndahúsi og halaði hún inn rúmar 3,3 milljónir kr.
Bandarískar kvikmyndir áttu 85% af markaðnum sé horft til tekna en 87% sé horft til aðsóknar. Þetta er ívið minna en árið á undan þegar bandarískar kvikmyndir voru með í kringum 90% af markaðinum, sem var óvenjuhátt hlutfall. Allar 20 stærstu myndirnar, að þeim þremur íslensku undanskildum, komu úr smiðju bandarísku kvikmyndastúdíóanna. Síðasta ár var einkar gott fyrir Disney á Íslandi því þaðan komu myndirnar sem röðuðu sér í sæti þrjú til sex. Aðrar erlendar kvikmyndir en bandarískar voru því með 3,4% af markaðnum í tekjum á síðasta ári. Vinsælasta kvikmynd ársins vestur í Bandaríkjunum í tekjum talið var Star Wars: The Last Jedi.
Alls voru 172 kvikmyndir teknar til sýninga í kvikmyndahúsum á síðsta ári en voru 179 tvö ár þar á undan (2015 og 2016).
Lista yfir tuttugu vinsælustu kvikmyndirnar á árinu 2017 má sjá hér að neðan. Þess má geta að vinsældum mynda er ávallt raðað eftir tekjum en ekki aðsókn. Þetta er gert svo að hlutfall boðsmiða eða afsláttarmiða í umferð hafi ekki áhrif á vinsældir kvikmynda.
|
Nafn | Dreifing | Frumsýnd | Tekjur | Aðsókn | |
1 | Ég man þig | Sena | 5.5.2017 | 76,591,704 kr. | 47,368 |
2 | Undir trénu* | Sena | 6.9.2017 | 67,736,250 kr. | 42,427 |
3 | Star Wars: The Last Jedi* | Samfilm | 14.12.2017 | 67,546,351 kr. | 50,645 |
4 | Thor: Ragnarok* | Samfilm | 27.10.2017 | 49,740,365 kr. | 38,039 |
5 | Guardians of the Galaxy – Vol. 2 | Samfilm | 28.4.2017 | 48,257,615 kr. | 36,961 |
6 | Beauty and the Beast (2017) | Samfilm | 17.3.2017 | 47,232,358 kr. | 38,552 |
7 | Despicable Me 3 (Aulinn ég 3) | Myndform | 5.7.2017 | 46,971,174 kr. | 44,009 |
8 | Fast and Furious 8 (The Fate of the furious) | Myndform | 12.4.2017 | 36,608,463 kr. | 29,256 |
9 | Dunkirk | Samfilm | 19.7.2017 | 35,975,196 kr. | 28,074 |
10
|
Spider-man: Homecoming (2017) | Sena | 5.7.2017 | 35,375,104 kr. | 27,250 |
11 | Hjartasteinn | Sena | 13.1.2017 | 34,440,662 kr. | 22,684 |
12 | Wonder Woman | Samfilm | 1.6.2017 | 33,737,593 kr. | 25,799 |
13 | Pirates of the Caribbean – Salazar’s Revenge | Samfilm | 24.5.2017 | 32,952,662 kr. | 25,495 |
14 | La La Land | Samfilm | 27.1.2017 | 32,695,466 kr. | 25,913 |
15 | IT (2017) | Samfilm | 8.9.2017 | 32,642,023 kr. | 24,766 |
16 | Kingsman: The Golden Circle (2017) | Sena | 22.9.2017 | 29,273,597 kr. | 22,942 |
17 | Logan | Sena | 3.3.2017 | 29,088,190 kr. | 22,394 |
18 | Justice League+ | Samfilm | 17.11.2017 | 28,629,380 kr. | 21,393 |
19 | The Lego Batman Movie | Samfilm | 10.2.2017 | 28,547,463 kr. | 27,443 |
20 | Baywatch | Samfilm | 1.6.2017 | 28,054,448 kr. | 22,805 |
*Kvikmynd enn í sýningu svo ekki er um heildartölur að ræða.